Skoðun

EM fyrir sprotana!

Hrönn Margrét Magnúsdóttir skrifar
Ótrúleg velgengni íslenska landsliðsins á EM 2016, heimsathyglin og meðbyrinn frá öðrum þjóðum (nema kannski þeim sem við höfum unnið) er eitthvað sem verður seint gleymt. Nú erum við ekki bara landið með eldgosin, bankahrunið og Panama-hneykslið, heldur landið með fegurðardrottningar, sterkustu mennina, hraustustu konurnar og íslenska landsliðið í fótbolta sem hefur tekist hið ómögulega.

Sem stofnandi sprotafyrirtækis sem þróar og markaðssetur íslenskar húðvörur og fæðubótarefni sem vinna saman innan frá og utan að bættu útliti og heilsu undir vörumerkinu Feel Iceland hlýtur maður að spyrja sig hvernig hægt sé að nýta þetta einstaka tækifæri í markaðssetningu á erlendri grundu.

Það fylgja því án efa kostir og gallar að vera með vörumerki sem inniheldur orðið Ísland eins og Feel Iceland og velti undirrituð því óneitanlega fyrir sér hvort það hefðu verið mistök þegar Panama-skjölin litu dagsins ljós. En í dag er nafnið svo sannarlega engin mistök og gæti í rauninni ekki verið betra, að minnsta kosti þar til eitthvað annað skekur þjóðina.

Það er mikilvægt fyrir litlar þjóðir eins og okkar að við stöndum saman og síðustu vikur höfum við Íslendingar sýnt heiminum að við stöndum þétt við bakið á okkar fólki og erum fljót upp á fæturna ef illa gengur.

Fyrir sprotafyrirtæki með takmarkað fjármagn skiptir miklu máli að fá eins mikla umfjöllun og hægt er og það helst ókeypis. Þessi velgengni landsliðsins er því mikil blessun fyrir íslensk sprotafyrirtæki sem ætla út fyrir landsteinana og ber að nýta þennan meðbyr út í ystu æsar til þess að vekja athygli erlendis.

Eftir að hafa lagst undir feld koma hér nokkrar hugmyndir að því hvernig við sprotar getum nýtt okkur þetta tækifæri:

Frábær ísbrjótur á fundum erlendisFletta upp í Íslendingabók og finna þann landsliðsmann sem er skyldastur okkur og státa okkur af frænda okkar í landsliðinu Við erum búin að sanna að Íslendingar geta látið hið ómögulega gerastÞó við séum lítil þjóð erum við ekki lítil í okkurVið erum þekkt fyrir þrautseigju og gefumst ekki uppSprotar eiga að standa saman og styðja hvorn annan

Takk Lars, takk Heimir og takk strákarnir okkar fyrir að gefa okkur sprotum vind í seglin á erlend mið.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×