Innlent

Éljagangur í dag en norðanstórhríð út vikuna

Samúel Karl Ólason skrifar
Draga mun úr vindi og éljagangi í kvöld og nótt, en á morgun mun vindurinn snúast í norðan 10-18 með éljum á norðanverðu landinu.
Draga mun úr vindi og éljagangi í kvöld og nótt, en á morgun mun vindurinn snúast í norðan 10-18 með éljum á norðanverðu landinu. Vísir/Pjetur
Reikna má með hvassviðri í dag og skúra- eða éljaveðri. Vindurinn verður þó hægari á norðausturhluta landsins. Hiti verður um eitt til sex stig. Á morgun snýst hins vegar í norðanátt með éljagangi eða snjókomu fyrir norðan og á fimmtudaginn er spáð norðanstórhríð fyrir norðan og að hún gangi ekki niður fyrr en á sunnudag og mánudag.

Sunnar á landinu mun létta til og kólna samkvæmt Veðurstofu Íslands.

Í dag er gert ráð fyrir suðvestan 13-20 m/s en 15-23 undir hádegi. Draga mun úr vindi og éljagangi í kvöld og nótt, en á morgun mun vindurinn snúast í norðan 10-18 með éljum á norðanverðu landinu.

Þá er tekið fram á vef Veðurstofunnar að á þessum degi árið 1985 hafi orðið mikið tjón í ofsaveðri hér á landi. Bílar hafi fokið út af og festar báta og skipa hafi slitnað. Þá hafi jafnvel heilu þökin fokið af húsum. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Norðan og norðvestan 10-18 m/s og snjókoma eða éljagangur á N-verðu landinu, hvassast á annesjum, en hægara og bjart með köflum syðra. Víða frostlaust við ströndina, en frost annars 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:

Norðan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur N-til, en úrkomulítið fyrir sunnan. Frost víða 0 til 5 stig.

Á föstudag:

Áfram norðanstórhríð með ofankomu fyrir norðan, jafnvel rigningu við ströndina, en bjartviðri S-lands. Hlýnar dálítið í veðri.

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljagangi fyrir norðan, en bjartviðri syðra. Svalt í veðri.

Á mánudag:

Lægir, léttir til og kólnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×