Innlent

Eldur kviknaði út frá potti

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eitt leytið í dag um svartan reyk sem bar út um glugga á íbúð í Gvendargeisla í Grafarholti. Allt tiltækt lið var kallað út, en einni stöð var þó svo snúið við.

Samkvæmt Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kviknaði eldurinn út frá potti sem hafði verið skilinn eftir á eldavél og barst hann í innréttingu eldhússins. Um talsverðan eld var að ræða sem var þó eingöngu bundinn við innréttinguna. Hann barst ekki út á stigagang.

Íbúðin er mikið skemmd vegna eldsins, reyks og sóts.

Reykkafarar fóru inn í íbúðina en nú stendur reykræsting yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×