Fótbolti

Eldri borgarar leiddu leikmenn AIK inn á völlinn | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
mynd/skjáskot
AIK bryddaði upp á skemmtilegri nýjung um helgina þegar eldri borgarar leiddu leikmenn sænska liðsins inn á Friends Arena fyrir deildarleik gegn Gefle.

Venjan er að börn leiði leikmenn inn á völlinn fyrir fótboltaleiki en AIK lét þess í stað elstu félagsmennina fylgja leikmönnunum inn á völlinn.

Fremstur í flokki fór hinn 86 ára gamli Lennart Johansson, fyrrum forseti UEFA.

Landsliðsmaðurinn Haukur Heiðar leikur með AIK en hann var ekki í byrjunarliðinu um helgina. AIK vann leikinn gegn Gefle með einu marki gegn engu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×