Formúla 1

Ekki fyrsta einvígið í Formúlu 1

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Niki Lauda og James Hunt árið 1976.
Niki Lauda og James Hunt árið 1976. vísir/getty
Einvígi Rosbergs og Hamiltons um helgina gæti komist í sögubækurnar sem eitt af frægari einvígjum Formúlusögunnar.

Fyrsta alvöru einvígið var á milli Niki Lauda og James Hunt árið 1976. Því einvígi voru gerð skil í hinni stórgóðu mynd Rush sem kom út fyrir þremur árum. Þá missti Lauda aðeins af tveimur keppnum eftir að hafa brennst mjög illa og var í raun heppinn að hafa lifað af.

Í dramatískri lokakeppni i Japan hætti Lauda í rigningunni á öðrum hring og Hunt náði að lokum þriðja sæti og varð heimsmeistari með einu stigi.

Alain Prost háði mikið einvígi við Nigel Mansell og Nelson Piquet árið 1986. Prost var svo aftur á ferðinni í ógleymanlegu einvígi við Ayrton Senna þremur árum síðar.

Fræg einvígi á síðari árum voru meðal annars á milli Michaels Schumacher og Damons Hill árið 1994. Schumacher háði einnig mikið einvígi við Jacques Villenueve árið 1997.


Tengdar fréttir

Einvígi æskuvina í eyðimörkinni

Mercedes-félagarnir Nico Rosberg og Lewis Hamilton munu berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í lokakeppni tímabilsins sem fram fer í Abú Dabí á morgun. Rosberg stendur vel að vígi í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×