Fótbolti

Ekkert nema bikarsilfur hjá íslenskum landsliðsmönnunum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Theódór Elmar Bjarnason með boltann í bikarúrslitaleiknum í dag.
Theódór Elmar Bjarnason með boltann í bikarúrslitaleiknum í dag. Vísir/Getty
Theódór Elmar Bjarnason og félagar í AGF urðu að sæti sig við tap tap fyrir FC Kaupmannahöfn í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í dag.

FC Kaupmannahöfn vann bikarúrslitaleikinn 2-1 en hann fór fram á Telia Parken í Kaupmannahöfn sem er jafnframt heimalvöllur FCK.

Theódór Elmar Bjarnason spilaði fyrstu 623 mínúturnar í leiknum en hann var tekinn af velli þegar staðan var 1-1. FCK skoraði sigurmarkið fimmtán mínútum eftir að Theódór Elmar fór af velli.

Nicolai Jørgensen kom FCK í 1-0 á 29. mínútu en Morten Rasmussen jafnaði metin á lokamínútu fyrri hálfleiks. William Kvist skoraði sigurmarkið á 78. mínútu leiksins og sá til þess að FCK er bikarmeistari annað árið í röð.

Þetta var í sjöunda sinn sem FC Kaupmannahöfn vinnur danska bikarinn en AGF átti möguleika á því að vinna hann í tíunda sinn fyrst danskra félaga.

Það bættist því við bikarsilfur hjá íslenskum landsliðsmanni en fyrr í dag höfðu þeir Kári Árnason og Viðar Örn Kjartansson tapað bikarúrslitaleiknum í Svíþjóð með liði sínu Malmö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×