Bíó og sjónvarp

Eitthvað einstakt við systur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Anna mun flytja heilt tökulið til landsins.
Anna mun flytja heilt tökulið til landsins. mynd/malin sydne
„Það er eitthvað einstakt við systur, maður elskar þær út yfir endimörk alheimsins en svo geta samskiptin líka farið í klessu. Síðan aftur á móti fyrirgefst allt og mig langaði að skoða það,“ segir Anna Gunndís Guðmundsdóttir, sem undirbýr nú stuttmyndina I Can't Be Seen Like This sem hluta af meistaranámi sínu í kvikmyndagerð við NYU, New York-háskóla.

„Kveikjan að þessu var slys sem ég lenti í þegar ég var átta ára – hárið á mér festist í hrærivélinni og rifnaði af,“ segir Anna en myndin fjallar um tvær ungar systur sem ákveða að baka köku í tilefni afmælis pabba síns. Allt fer síðan úr böndunum þegar yngri systirin festir hárið í hrærivélinni en atburðurinn afhjúpar bresti í sambandi stelpnanna. Ólafur Darri leikur föðurinn í myndinni en Anna leitar nú að efnilegum leikkonum á aldrinum 8-12 ára til að leika aðalhlutverkin. Hægt er að senda henni fyrirspurnir á casting@kusk.is.

Anna mun flytja heilt tökulið til Íslands í janúar en hún heldur einmitt úti söfnun á Karolina Fund fyrir flugmiðum og segir hana ganga vonum framar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×