Skoðun

Einkarekstur er ekki einkavæðing

Hulda Bjarnadóttir skrifar
Einkarekstur og einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar hafa verið talsvert í umræðunni og sumir telja þetta vera það sama. En einkarekstri má ekki rugla saman við einkavæðingu. Það er langur vegur á milli þessara hugtaka og þróunin yfir í aukinn einkarekstur mun ekki þýða að ríkið hætti að sjá okkur fyrir grunnþjónustu sem allir skattgreiðendur hafa rétt á og vilja fá. Það að heilbrigðiskerfið sé rekið með stoðþjónustu og aðstoð einkafyrirtækja er einfaldlega aðferð til að tryggja hagkvæmari og fjölbreyttari þjónustu, með minni tilkostnaði. Ríkið mun að lokum alltaf sinna því allra nauðsynlegasta. Það gerir skattgreiðandinn einfaldlega kröfu um.

Kerfi er ekki bygging

Og talandi um það. Hver segir að spítalaþjónusta sé bygging sem ríkið á og rekur? Er ekki einmitt nauðsynlegt að huga áfram að leiðum sem geta nýst sjúklingum og aðstandendum hvað best. Teljum við okkur hafa efni á þvi að stækka yfirbygginguna eða viljum við vera opin fyrir nýjum og hagkvæmari leiðum þar sem ríkið greiðir minna, sinnir skyldum sínum og sjúklingurinn greiðir sama verð þar sem þjónustan er þegin. Hinn endinn á þörf fyrir þjónustu er einmitt biðlistarnar sem verða til við takmörkun fjármagns og aðstöðuleysi af hálfu ríkisins. Af hverju ætti rík þjóð á borð við okkar að sætta sig við biðlista yfirhöfuð? Er það bara að verða venjan frekar en undantekningin? Og að sumir hafi ekki aðgengi að heimilislækni. Þannig er staðan á Íslandi í dag.

Stýrt þjónustustig ríkisins

Það er þó segin saga að þegar kemur að því að ræða einkarekstur verður fókusinn oftar en ekki á hagnað og laun þeirra sem sinna þjónustunni utan þeirrar byggingar sem kallast ríkisspítali. Það er þó löngu vitað að mörgum þjónustuþáttum er hægt að sinna utan spítalans, með minni tilkostnaði. Ríkið á og getur með ýmsu móti stýrt þjónustustigi til þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustunni að halda. Án þess að það fari allt í gegnum eina gátt sem kallast spítali. Við erum eftirbátar Norðurlandaþjóða sem nýta sér einkarekstur margfalt meira en við.

Og jú, vissulega geta einhverjir hagnast á því að vera með fyrirtæki í einkarekstri þar sem ríkið er einn stærsti viðskiptavinurinn. En á bak við fjölbreyttari þjónustu eru oftast nær framtaksamir og duglegir einstaklingar sem eru tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu og oft á tíðum að leggja allt sitt undir. Og það þýðir að sama skapi að áhætta viðkomandi er töluverð – allt getur farið á versta veg. Það setur þrýsting á rekstraraðilann að veita framúrskarandi þjónustu svo að viðskiptavinurinn snúi aftur. Samkeppnin býr þannig til umhverfi sem hvetur alla til dáða og þeir sem hagnast mest eru sjúklingarnir.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×