Lífið

Efri stéttin: Hvernig er að vera ferðamaður á Íslandi?

Atli Ísleifsson skrifar
Efri stéttin hæðist að ferðamönnum á Íslandi fyrir í nýjasta þætti sínum. Þátturinn er í svokölluðu „mockumentary“ formi og sýnir hópurinn að hann hikar ekki við að fara nýjar leiðir.

Er Ísland eins gott og allir segja? Efri stéttin fær reynsluna beint í æð. 

Sjá einnig: Snæbjörn berst fyrir sjálfstæði Bryggjuhverfisins

Efri stéttinni er fátt heilagt eins og sést í þáttunum en þeir hafa alls verið fjórir hér á Vísi. Á bak við Efri Stéttina er einn ferskasti grínhópur landsins. Meðlimir hans voru áður í skemmtiþættinum 12:00 í Verzlunarskólanum og vöktu mikla athygli síðasta vetur fyrir vel heppnuð lög og myndbönd og sprenghlægileg atriði. Þættirnir verða sýndir vikulega fram í september og frumsýndir um helgar hér á Vísi.

Sjá einnig: Efri stéttin: Dagur B. neitar Bryggjuhverfinu um sjálfstæði

Þau sem skipa Efri stéttina eru Árni Steinn Viggósson, Bergþór Másson, Melkorka Davíðsdóttir Pitt, Ágúst Elí Ásgeirsson, Brynjar Barkarson, Birna María Másdóttir og Kári Eldjárn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×