Innlent

Efnt til samkeppni um nýtt þinghús

Ingvar Haraldsson skrifar
Alþingisgarðurinn verður í óbreyttri mynd enda hið nýja þinghús við hlið Alþingishússins.
Alþingisgarðurinn verður í óbreyttri mynd enda hið nýja þinghús við hlið Alþingishússins. fréttablaðið/gva
Auglýst hefur verið eftir tillögum að hönnun nýrrar byggingar fyrir Alþingi á Alþingisreitnum. Gert er ráð fyrir 4.500 fermetra byggingu með 1.200 fermetra kjallara. 75 milljónum var ráðstafað á fjárlögum þessa árs til und­ir­bún­ings verkefninu. Byggingin verður nærri núverandi Alþingishúsi, á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu.

„Þetta byggir á mjög ítarlegri þarfagreiningu sem upphaflega var unnin á árinu 2008 sem við höfum svo yfirfarið og endurnýjað,“ segir Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. Það hafi sýnt sig að mun hagkvæmara væri fyrir Alþingi að byggja eigið hús í stað þess að leigja húsnæði í námunda við Alþingishúsið. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, bendir á að Alþingi leigi nú rými í öllum húsum við norðurhluta Austurvallar.

Einar K Guðfinnsson forseti Alþingis
„Okkar hugmynd er sú að byggja hús sem myndi hýsa meira og minna alla þjónustustarfsemi við þingið. Þarna verða skrifstofur þingmanna, nefndarsvið Alþingis, fundarsalir og eitt og annað slíkt,“ segir Einar.

Ekki er stefnt að því að byggja á þingsályktunartillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sem ríkisstjórnin afgreiddi á síðasta ári, um að byggingin yrði unnin eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar frá árinu 1916. „Það hafa ýmsir verið með ágætar hugmyndir. Kjarninn í hugmyndum hans hefur auðvitað verið að byggja þarna hús sem væri í samræmi við það sem fyrir er og væri í eðlilegum tengslum við þinghúsið. Alveg eins og skálinn, viðbótin sem tekin var í notkun árið 2002, hún er eins og sjá má í afar nánum og góðum tengslum við þinghúsið,“ segir Helgi. Sigmundur geti því sent inn sína tillögu eins og aðrir.

Skilafrestur er til 25. október en sjö milljónir króna verða veittar fyrir vinningstillöguna og heildarverðlaunafé nemur 14 milljónum króna. Vonast er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og byggingin verði tekin í notkun um áramótin 2019/2020. Miðað hefur verið við að kostnaður við framkvæmdirnar nemi um 2,3 milljörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×