Lífið

Eðvarð Atli grenjaði úr hlátri yfir Chewbacca konunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það hafa eflaust margir horft á þetta myndband í dag.
Það hafa eflaust margir horft á þetta myndband í dag. vísir
Eins og Lífið greindi frá í morgun er eitt allra vinsælasta myndbandið í heiminum í dag af bandarískri konu að nafni Candace Payne.

Hún ákvað í gær að gefa sjálfri sér afmælisgjöf og var hún ekkert lítið ánægð með kaupin. Payne ákvað að sýna frá því beint á Facebook þegar hún opnaði pakkann og setti upp glænýja Chewbacca grímu, en flestir kannast við Chewbacca úr Star Wars myndunum.

Þegar þessi frétt er skrifuð hafa yfir 35 milljónir manna horft á myndbandið frá því í gær, sem er með hreinum ólíkindum.

Íslengingar eru líka sjúkir í þetta myndband og á vinnustaðnum HN Markaðssamskipti náðist myndband af starfsmanni þegar hann sá umrædd vídeó í fyrsta skipti. Sá heitir Eðvarð Atli Birgisson og gjörsamlega kafnaði hann úr hlátri eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×