Skoðun

Dýr í neyð

Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar

Kettir eru vinsæl selskapsdýr og sem samfélag viljum við að vel sé búið að köttum, jafnt sem öðrum dýrum. Um allt land er hins vegar vandamál sem tengist velferð og vellíðan katta sem verður að takast á við af ábyrgð, en margir kettir hér á landi veslast upp úr hungri og vosbúð, allt frá kettlingum upp í fullorðna ketti.



Þetta eru hinir svokölluðu villikettir sem allir eiga rætur að rekja til heimiliskatta sem hafa týnst eða hrakist frá heimilum sínum. Mikið er einnig um vergangsketti sem hafa týnst frá heimilum sínum og rata ekki heim. Villi- og vergangskettir eiga oft ömurlega ævi þar sem þeir lifa við hörð skilyrði, bæði í borg og sveit.



Að gefa þessum köttum fóður er þeim verðmæt aðstoð en þeir halda yfirleitt til á ákveðnum stöðum þar sem þeir hafa fundið skjól. Í raun ætti að vera jafn sjálfsagt að gefa villiköttum og að gefa fuglum, ekki síst á veturna.



Félög eins og Villikettir, Óskasjóður Púkarófu, Villikattahjálp Hafnarfjarðar og Kisukot á Akureyri hafa verið að halda úti starfsemi þar sem þessum dýrum er gefið og skjól útbúið fyrir þau þar sem þau halda til til að létta þeim tilveruna. Dýrin eru einnig fönguð og þau gelt til dæmis á vegum Villikatta og Kisukots, enda léttir það þeim lífsbaráttuna að þurfa ekki að hlýða hvöt um að fjölga sér, en margar villilæður hafa þjáðst af slæmum legbólgum vegna síendurtekinna gota.



Fullorðnum dýrum er yfirleitt sleppt aftur en kettlingum er fundið heimili, enda erfitt að aðlaga fullorðinn kött. Veikum dýrum er komið undir læknishendur. Með þessum hætti er hlúð að dýrunum, þeim gefið fóður og komið í veg fyrir að þeim fjölgi þar sem þau halda til.



Styrkur í þágu dýra

Verði maður var við veikan, illa haldinn eða slasaðan kött ber að koma honum til hjálpar samkvæmt lögum um velferð dýra. Hægt er að leita til Kattavinafélags Íslands sem heldur úti sjúkrasjóðnum Nótt sem ætlaður er til að kosta læknisaðgerðir og hjúkrun á ómerktum slösuðum kisum sem enginn vill kannast við. Vil ég hvetja sem flesta til að styrkja sjóðinn í þágu þessara dýra.



Sveitarfélög bera lögum samkvæmt ábyrgð á hálfvilltum dýrum eins og ómerktum köttum, en óvissara er um að leitað sé læknishjálpar eða nýs heimilis fyrir þá á vegum hins opinbera, sem ber einungis skylda til að halda þeim á lífi í tvo daga og ekki skylda til að auglýsa þá ef þeir eru ómerktir. Öflugt félagsstarf er þessum köttum því til mikillar gæfu.



Veturinn er villi- og vergangsköttum afar erfiður. Vil ég hvetja sem flesta að gefa þessum köttum gaum og taka þátt í eða styðja við þá starfsemi sem liðsinnir þessum dýrum í neyð.



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. maí 2016



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×