Fótbolti

Dortmund vann þýska ofurbikarinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Henrikh Mkhitaryan fagnar hér fyrsta marki leiksins.
Henrikh Mkhitaryan fagnar hér fyrsta marki leiksins. Vísir/Getty
Lítið sást til Robert Lewandowski er hann sneri aftur á Signal Iduna Park í 2-0 sigri Dortmund á nýja félagsliði hans Bayern Munchen.

Leikurinn um þýska ofurbikarinn hefur farið fram á hverju ári undanfarin fimm ár en þetta er þriðja árið í röð sem Dortmund mætir Bayern Munchen í úrslitum.

Leikurinn var fyrsti leikur Lewandowski í treyju Bayern Munchen en hann gekk til liðs við félagið frá Dortmund á frjálsri sölu fyrr í sumar.

Henrikh Mkhitaryan kom Dortmund yfir með glæsilegri afgreiðslu um miðbik fyrri hálfleiks áður en Patrick Aubameyang bætti við öðru marki Dortmund í seinni hálfleik og gerði endanlega út um leikinn.

Öruggur sigur Dortmund staðreynd og er ekki hægt að segja annað en að leikmenn Dortmund líti vel út fyrir tímabilið sem framundan er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×