Sport

Dópsalar í Ríó nota merki Ólympíuleikana til að selja kókaín

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólympíuleikarnir verða settir 5. ágúst.
Ólympíuleikarnir verða settir 5. ágúst. vísir/getty
Ólympíuleikarnir í Ríó verða settir 5. ágúst næstkomandi.

Opnunarhátíðin fer fram á hinum glæsilega Maracana-velli þar sem úrslitaleikur HM í fótbolta fór fram fyrir tveimur árum.

Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum lögðu lögreglumenn hald á 93 pakka af kókaíni rétt fyrir utan Maracana á mánudagskvöldið.

Það er kannski ekki í frásögur færandi nema hvað pakkarnir voru með Ólympíuhringjunum frægu og opinberu merki ÓL í Ríó.

Dópsalarnir hafa eflaust litlar áhyggjur af því að brjóta lög um höfundarrétt en þeir voru þó svo „hugulsamir“ að setja viðvörunina „notist ekki í návist barna“ á pakkana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×