Bíó og sjónvarp

Donald Glover og James Earl Jones munu leika Simba og Múfasa

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Donald Glover.
Donald Glover. Vísir/EPA
Leikarinn Donald Glover, hefur hreppt hlutverkið sem ljónið Simba, í nýrri leikinni endurgerð af myndinni undir framleiðslu Disney.

Leikstjóri myndarinnar, Jon Favreau tilkynnti þetta á Twitter síðu sinni í gær en hann tilkynnti einnig að leikarinn James Earl Jones mun fara með hlutverk Múfasa en það gerði hann einnig í upprunalegu myndinni frá árinu 1994.

Lion King er í hugum margra ein ástsælasta Disney teiknimyndin og fjallar hún um fjölskylduerjur í konungsborinni ljónaætt og byggir handritið á leikrititinu Hamlet eftir William Shakespeare.

Lítið er vitað um endurgerðina, annað en að stefnt er að því að hún komi út árið 2020.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×