Sport

Djokovic í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/getty
Novak Djokovic, serbneski tenniskappinn, er kominn í undanúrslit á opna Miami meistaramótinu eftir sigur á Spánverjanum David Ferrer, 7-5 og 7-5.

Djokovic mun mæta Bandaríkjamanninum John Isner í undanúrslitunum, en Isner vann Kei Nishikori 6-4 og 6-3. Isner er fyrsti bandaríski tenniskappinn sem nær í undanúrslit frá því Mardy Fish gerði það 2011.

„Ég var ekki að finna boltann í byrjun, en ég vissi að ég myndi fá mína möguleika ef ég myndi halda einbeitingu og halda áfram að vinna," sagði þessi 27 ára kappi.

„Ég vissi að Ferrer væri erfiður viðureignar. Hann hleypur mikið og lætur þig alltaf skjóta auka skot. Það er ástæðan fyrir því að hann hefur verið á topp 10 listanum svona lengi."

Undanúrslitin hefjast í dag, en þá mætir Bretinn Andy Murray hinum tékkneska Tomas Berdych.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×