Sport

Djokovic handhafi allra risatitlana | Vann loksins Opna franska

Stefán Árni Pálsson skrifar
Djokovic er einn allra sigursælasti tennisspilari sögunnar.
Djokovic er einn allra sigursælasti tennisspilari sögunnar. vísir/getty
Serbinn Novak Djokovic stóð uppi sem sigurvegari á Opna franska meistaramótinu í Tennis í dag eftir að hafa lagt Bretann Andy Murray af velli, 3-6, 6-1, 6-2 og 6-4.

Þetta var í fyrsta skipti sem Djokovic vinnur Opna franska og var þetta tólfti risatitill Serbans á ferlinum. Djokovic er núna fyrsti maðurinn í tæplega fimmtíu ár sem er handhafi allra stærstu titlana á sama tímanum.

Sigurinn var greinilega mikilvægur fyrir Djokovic sem féll aftur fyrir sig og lá lengi á gólfinu þegar ljóst varð að hann hefði unnið mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×