Sport

Djokovic er Wimbledon meistari 2015

Novak Djokovic fagnaði sínum þriðja sigri á Wimbledon mótinu með því að leggja Federer að velli.
Novak Djokovic fagnaði sínum þriðja sigri á Wimbledon mótinu með því að leggja Federer að velli. vísir/getty
Novak Djokovic tryggði sér rétt í þessu sigur á Wimbledon mótinu í tennis og varði þar með titilinn sem hann vann á svo eftirminnilegan hátt í fyrra.

Djokovic vann Svisslendinginn Roger Federer í fjórum settum en tvö þau fyrstu voru æsispennandi. Djokovic vann fyrsta settið 7-6, Federer það næsta 7-6 en Djokovic tryggði sér svo sigur með því að vinna tvö næstu sett, 6-4 og 6-3.

Á síðustu fimm árum hefur Djokovic unnið Wimbledon þrisvar og einu sinni endað í öðru sæti. Óneitanlega frábær árangur.

Djokovic er þar með búinn að jafna þjálfara sinn, Þjóðverjann Boris Becker, í fjölda Wimbledon titla en báðir hafa þeir unnið Wimbledon mótið þrisvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×