Fótbolti

Di Matteo rekinn frá Schalke

Anton Ingi Leifsson skrifar
Allar líkur eru á því að Di Matteo sé á leið burt frá Schalke 04.
Allar líkur eru á því að Di Matteo sé á leið burt frá Schalke 04. vísir/getty
Roberto Di Matteo hefur verið rekinn sem stjóri Schalke 04 í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu að því fram kemur í þýskum fjölmiðlum í gær.

Di Matteo hefur verið við stjórnvölinn hjá Schalke frá því í október 2014 þegar hann tók við af Jens Keller. Hann kom Schalke í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Schalke datt út fyrir Real Madrid, samanlagt 5-4.

Schalke mistókst að krækja sér í Meistaradeildarsæti og tapaði 2-0 gegn botnbaráttuliði HSV í lokaumferðina í gær. Það hefur greinilega fyllt mælinn hjá forráðamönnum Schalke, en þýska liðið þarf að fara í umspil um laust sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Það hefur eitt og annað verið í lausu lofti hjá Schalke undanfarnar vikur. Kevin-Prince Boateng og Sidney Sam voru leystir undan samningi af íþróttastjóranum, Horst Heldt, fyrir nokkru síðan og er Heldt einnig sagður á förum frá félaginu.

Heldt sagði í samtali við þýska sjónvarpið í gær að allir hjá félaginu þyrftu að skoða stöðu sína, hvort sem það væru leikmenn eða þeir sem væru hinu megin við borðið.

Hápunktur Di Matteo á sínum þjálfaraferli var klárlega þegar hann stýrði Chelsea til sigurs í Meistaradeildinni tímabilið 2011/2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×