Enski boltinn

Di Maria nálægt því að ganga í raðir PSG

Di Maria hefur ekki verið nógu hamingjusamur í Manchester.
Di Maria hefur ekki verið nógu hamingjusamur í Manchester. vísir/getty
Laurent Blanc, þjálfari PSG, sagði eftir leik liðsins gegn Man. Utd í nótt að stutt væri í að félagið myndi kaupa Angel di Maria frá United.

Di Maria hefur verið þráfaldlega orðaður við PSG í allt sumar og er ekki með United á keppnisferðalagi liðsins í Bandaríkjunum.

„Þetta er tvö mjög stór félög í viðræðum og slíkar viðræður geta tekið tíma. Við erum þó alveg við að loka þessu," sagði Blanc eftir leikinn.

Di Maria kom aðeins til Man. Utd síðasta sumar frá Real Madrid og United greiddi þá tæpar 60 milljónir punda fyrir hann. Hann byrjaði vel hjá United en síðan fjaraði undan hans leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×