Fótbolti

De Jong orðinn liðsfélagi Kolbeins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
De Jong í nýju treyjunni.
De Jong í nýju treyjunni. mynd/galatasaray
Galatasaray fékk flottan liðsstyrk í dag er félagið samdi við Hollendinginn sterka Nigel de Jong.

Hann kemur til félagsins frá LA Galaxy og samdi við Galatasaray til tveggja ára.

Þessi sterki miðjumaður hefur leikið 81 landsleik fyrir hollenska landsliðið.

Hann hóf ferilinn hjá Ajax en fór þaðan til Hamburger í Þýskalandi og var þar í þrjú ár.

Árið 2009 var hann keyptur til Man. City og spilaði með félaginu í þrjú ár. Þá fór hann til AC Milan þar sem hann var í fjögur ár.

Hann er búinn að staldra stutt við hjá Galaxy enda samdi hann við félagið í lok janúar á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×