Enski boltinn

De Boer kynntur hjá Crystal Palace í dag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Frank de Boer gerði Ajax fjórum sinnum að hollenskum meisturum.
Frank de Boer gerði Ajax fjórum sinnum að hollenskum meisturum. vísir/getty
Samkvæmt breskum fjölmiðlum verður Hollendingurinn Frank de Boer kynntur sem næsti knattspyrnustjóri Crystal Palace síðar í dag.

De Boer tekur við stjórastarfinu hjá Palace af Sam Allardyce sem hætti óvænt eftir síðasta tímabil.

De Boer hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Inter í nóvember í fyrra. Hann entist aðeins 85 daga í starfi hjá ítalska liðinu.

De Boer stýrði Ajax á árunum 2010-16. Á þeim tíma vann liðið hollensku úrvalsdeildina í fjórgang.

Palace endaði í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×