Innlent

Davíð aflýsir fundum út af veikindum móður sinnar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Davíð Oddsson, forsetaframbjóðandi, hefur aflýst áætluðum stuðningsmannafundum í dag og á næstu dögum vegna alvarlegra veikinda móður sinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framboði Davíðs.

Einn fundanna átti að fara fram á Vík í Mýrdal í dag og næstu daga á Höfn í Hornafirði, Reyðarfirði og Egilsstöðum. Veikindi móður Davíðs hafa ágerst síðustu daga og hefur eiginkona hans, Ástríður, verið við hlið móður hans og því ekki tekið þátt í kosningabaráttunni að undanförnu.

Í annarri tilkynningu frá framboði Davíðs kemur fram að á síðunni xdavid.is hafi verið opnað stuðningsmannakerfi þar sem stuðningsmenn um land allt geti tekið þátt í kosningabaráttunni með beinum hætti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×