Sport

Danir hlutskarpastir

Mikil stemning var í Laugardalnum í dag.
Mikil stemning var í Laugardalnum í dag. Vísir/Andri Marinó
Danir unnu fimm af sex gullverðlaununum sem í boði voru á Evrópumótinu í hópfimleikum í karlaflokki sem fram fóru í í Laugardal í vikunni og um helgina.

Svíar voru með frábærar æfingar í stökkgreinum þar sem Danir höfðu verið einna sterkastir og því ljóst að úrslitin réðust ekki fyrr en í lokaumferðinni.

Danirnir sigldu þessu heim þrátt fyrir hetjulega baráttu Svíþjóðar, en Svíarnir hlutu hæstu einkunn bæði á gólfi og trampólíni.

Danmörk hirti hins vegar titilinn og fimm af sex gullverðlaunum sem í boði voru. Næstir komu Svíar og Norðmenn ráku lestina.

Lokastaðan:

Danmörk 66.550

Svíþjóð 65.700

Noregur 59.816




Fleiri fréttir

Sjá meira


×