Innlent

Dagur segir sundlaug fyrir fötluð börn nauðsyn

snærós sindradóttir skrifar
Mikið ónæði er af jarðvegsvinnunni sem nú fer fram við Klettaskóla. Verktakar hafa ekki staðið við umsaminn fjölda sprenginga.
Mikið ónæði er af jarðvegsvinnunni sem nú fer fram við Klettaskóla. Verktakar hafa ekki staðið við umsaminn fjölda sprenginga. vísir/andri marínó
Borgarstjóri segir uppbyggingu við Klettaskóla, áður Öskjuhlíðarskóla, löngu tímabæra. Gamla húsnæðið endurspegli ekki nýjar áherslur í uppeldi og menntun fatlaðra barna.

Í Fréttablaðinu í gær sagði íbúi í næsta nágrenni við Klettaskóla frá óánægju sinni og annarra íbúa í hverfinu með uppbyggingu við skólann. Hún segir samráð við íbúa hverfisins hafa verið í algjöru lágmarki. Þá hafi verið byrjað að sprengja fyrir grunni byggingarinnar þann 21. júlí síðastliðinn og að nú þegar hafi myndast margar sprungur í hús hennar.

„Það var reynt að taka mið eins og hægt var af þeirri gagnrýni sem við fengum en okkur er alveg ljóst að það eru ekki allir á eitt sáttir,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Það hefur staðið til áratugum saman að byggja við Klettaskóla vegna þess að viðhorfin og sjónarmiðin til kennslu og uppeldis fatlaðra barna eru gjörbreytt. Þarna er verið að fara í betrumbætur á aðbúnaðinum, verið að tryggja að það sé íþróttaaðstaða og sundaðstaða innan seilingar.“

Byggja á fullbúið íþróttahús og tvær innisundlaugar fyrir börnin. Þá á að bæta við félagsaðstöðu barnanna. „Það er mjög mikið mál fyrir fjölfötluð börn að fara úr húsi og vera keyrð annað í þann hluta skólastarfsins. Eftir talsvert mikla yfirlegu var þessu komið fyrir þarna á lóðinni með viðbyggingum,“ segir Dagur.

Hann segir miður að íbúar í kring upplifi að borgin hafi ekki átt í nægu samráði við þá varðandi framkvæmdina. „Auðvitað veldur þetta ónæði á verktímanum, en það er mikilvægt að standa eins vel og hægt er að því. Það er búið að fara vel í gegnum það með foreldrum og aðstandendum en mér þykir mjög miður ef það hefur ekki gengið eins vel gagnvart íbúunum.“

Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×