Bílar

Dacia bílgerðum fjölgar hjá BL

Finnur Thorlacius skrifar
dacia Logan.
dacia Logan.
Bílaumboðið BL hefur haft jeppann Dacia Duster í sölu hérlendis í nokkurn tíma en það hefur verið eina bílgerðin sem umboðið hefur boðið íslenskum kaupendum fram að þessu.

Nú fer þó bílgerðunum frá þessa rúmenska bílaframleiðanda fjölgandi og hóf BL sölu á Dacia Logan fjölskyldubíl í síðustu viku.  „Viðbrögðin við þessum nýja ódýra fjölskyldubíl frá Dacia hafa ekki látið á sér standa, segir Hörður Harðarson sölustjóri hjá BL. Bíllinn var auglýstur á fimmtudaginn og á tímabili var einn að reynsluaka og tveir að bíða eftir að komast í reynsluakstur.

Það er ekki á hverjum degi sem fjölskyldubíll, af þessari stærð og með sparneytinni dísilvél er auglýstur á 2.890 þús. krónur. Við urðum strax vör við mikinn áhuga á þessum nýja bíl. Dacia er smíðaður í Rúmeníu en verksmiðjurnar eru í eigu Renault og Nissan og það má einnig sjá á ýmsum íhlutum sem í bílnum eru að þeir koma úr eldri gerðum frá þessum framleiðendum“.

Dacia Logan er búinn 1,5 l díslivél sem, samkvæmt uppgefnum tölum framleiðanda notar einungis 3,8 lítra á hverja 100 km í blönduðum akstri.  Dacia Logan er einungis hægt að fá með beinskiptingu en búnaður bílsins í þeirri útgáfu sem BL ehf. leggur áherslu á er nokkuð ríkulegur. Til að mynda er hann með leiðsögubúnað og 7 tommu LED upplýsingaskjá, fjarlægðarskynjarar eru í afturstuðara, hraðastillir er staðalbúnaður auk handfrjáls símabúnaðar og USB tengi fyrir iPod.

Hingað til hefur einungis jeppinn Dacia Duster verið fáanlegur frá Dacia en núna bætist Logan í línuna og í haust er von á sendibíl frá Dacia sem kallast Dacia Dokker.

Dacia Dokker kemur seinna á þessu ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×