Fótbolti

Cristiano Ronaldo róar stuðningsmenn Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo fær hér hjálp við að standa á fætur.
Cristiano Ronaldo fær hér hjálp við að standa á fætur. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Real Madrid tóku örugglega andköf í dag þegar þeir sáu myndband frá æfingu Real Madrid liðsins en spænska liðið er nú að undirbúa sig fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar um næstu helgi.

Á myndbandinu sést Cristiano Ronaldo meiðast og þeir svartsýnustu voru án efa byrjaðir að ímynda sér úrslitaleikinn á San Siro án síns besta leikmanns.

Cristiano Ronaldo lenti í samstuði við varamarkvörðinn Kiko Casilla og lá eftir í grasinu, að því virðist sárþjáður.  

Læknar Real Madrid hlupu til og hópuðust að stjörnunni en allir á svæðinu höfðu greinilega miklar áhyggjur af stöðunni á portúgalska landsliðsmanninum. Ronaldo var grenilega svekktur og það leit út fyrir að meiðslin gætu verið alvarleg. Hann stóð samt upp og gekk óstuddur af æfingunni.

Áður en spænsku fjölmiðlarnir voru búnir að slá því upp að Cristiano Ronaldo væri að fara að missa af úrslitaleiknum á laugardagskvöldið þá ákvað Ronaldo að stíga fram og fullvissa stuðningsmenn Real Madrid og aðra um að hafa ekki áhyggjur.

Cristiano Ronaldo sagði að mönnum hafi vissulega brugðið en eftir skoðun lækna hafi það komið í ljós að hann væri ekki mikið meiddur og því leikfær á laugardaginn.

Varamarkvörðurinn Kiko Casilla létti örugglega manna mest við að heyra þessar fréttir enda það hefði ekki verið gott fyrir hann að hafa það á samviskunni að hafa slasað mikilvægasta leikmann Real Madrid liðsins.

Cristiano Ronaldo hefur skorað 16 mörk í 11 leikjum í Meistaradeildinni á þessu tímabili en meiðsli kostuðu hann fyrri undanúrslitaleikinn á móti Manchester City.  Það er ljóst að Real Madrid þarf á honum að halda ætli liðið að vinna úrslitaleikinn á móti Atletico Madrid eftir fjóra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×