Fótbolti

Cristiano dansar eins og vindurinn

Portúgalski snillingurinn Cristiano Ronaldo sýnir magnaða takta í nýrri auglýsingu.

Auglýsingin er fyrir nýja skólínu sem hann er að gefa út. Í auglýsingunni er ljóst að Ronaldo er margt til lista lagt.

Það hefur alla tíð verið vitað að Ronaldo sé fimur á fótunum en þessi dansspor koma kannski einhverjum á óvart. Hann tekur meira að segja Michael Jackson spor.

Nærbuxurnar hans Ronaldo slógu í gegn á sínum tíma og skórnir eiga alveg örugglega eftir að gera það líka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×