Enski boltinn

Conte vill fimm leikmenn til viðbótar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Antonio Conte.
Antonio Conte. Vísir/EPA
Fram kemur í breskum fjölmiðlum að Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, hafi farið fram á það við Rússann Roman Abramovich, eiganda félagsins, að hann vilji kaupa fimm leikmenn til víðbótar til að styrkja liðið.

Stjórinn hefur nú þegar samið við N'Golo Kante og Michy Batshuayi eftir að hann tók við liðinu fyrr í þessum mánuði. Chelsea var allt annað en sannfærandi á síðasta tímabili og hafnaði liðið í 10. sæti deildarinnar, sem er í raun skelfilegt fyrir ríkjandi Englandsmeistara.

Chelsea hefur verið orðað við leikmenn á borð við Alvaro Morata, Romelu Lukaku, Radja Nainggolan og fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×