Sport

Conor gerði glímukappana brjálaða

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor er vinsæll og veit af því.
Conor er vinsæll og veit af því. vísir/getty
Írinn Conor McGregor er nú kominn á svarta listann hjá glímugaurunum í Bandaríkjunum eftir að hann kallaði þá aumingja.

Conor sagði í viðtali á dögunum að gaurarnir í WWE Wrestling væru allir steraðir aumingjar. Félagsskapur sem heillaði hann ekki sérstaklega.

Margir af helstu gaurunum í WWE brjáluðust við þessi ummæli Írans og létu hann heyra það á Twitter.

„Þú ert jafnstór og fótleggurinn min. Grjóthaltu kjafti,“ skrifaði Roman Reigns og margir félagar hans skrifuðu á sama veg.

Reigns, sá síðhærði, lét Conor heyra það.vísir/getty
Conor skrifaði svo tíst um málið á Twitter í gær.

„Ég ætlaði ekki að vanvirða gaurana í WWE. Það sem ég ég ætlaði að segja er að ég myndi rota þá alla og tvisvar á sunnudögum,“ skrifaði Írinn kaldhæðnislega eins og sjá má hér að neðan.

Það styttist í að Conor mæti Nate Diaz en þeir stíga í búrið þann 20. ágúst í beinni á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir

Diaz hræddi stuðningsmenn Conor

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel fékk bardagakappann Nate Diaz til að taka þátt í frábæru atriði í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×