Sport

Conor: Ég mun hvíla eistun á enninu þínu | Myndband

Conor McGregor.
Conor McGregor. vísir/getty
Íslandsvinurinn Conor McGregor heldur áfram að gera allt vitlaust í UFC-heiminum.

Vélbysskukjafturinn á McGregor hefur dregið mikla athygli að fjaðurvigtinni þar sem McGregor er þegar farinn að pirra bestu mennina.

Á laugardag mætast tveir bestu kapparnir í fjaðurvigtinni, meistarinn José Aldo og Chad Mendes, en bardagakvöldið verður í beinni á Stöð 2 Sport. Þetta er annar bardagi kappanna en Aldo vann frekar umdeildan sigur síðast er þeir mættust.

McGregor var í viðtali hjá BT Sport í vikunni þar sem Mendes ræddi við hann í gegnum síma. Líkt og búist var við náði McGregor að pirra Mendes.

Mendes spurði McGregor að því hvort hann vissi hvað wrestling væri? Því var auðsvarað: „Það þýðir að ég get hvílt eistun á enninu á þér," svaraði vélbyssukjafturinn.

Hann tjáði síðan Mendes að hann myndi tapa gegn Aldo.

„Ég mun fara og hrifsa beltið af Aldo. Síðan mun ég koma og finna dverghausinn þinn," sagði McGregor grimmur sem fyrr.

Innslagið má sjá hér að neðan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×