Innlent

Byrjuðu snjómokstur í húsagötum upp úr klukkan átta

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá snjómokstri á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Frá snjómokstri á höfuðborgarsvæðinu í gær. vísir/vilhelm
Byrjað var að moka húsagötur í Reykjavík núna upp úr klukkan 8 en tugir snjóruðningstækja hafa verið við snjómokstur á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fjögur í nótt eftir gríðarmikla ofankomu á suðvesturhorninu aðfaranótt sunnudags.

Stofnbrautir og tengibrautir eru hins vegar færar og gengur strætó samkvæmt áætlun. Því ættu allir að geta komist til vinnu eða í skóla þrátt fyrir að vera með bílinn fastan í húsagötu að sögn Hjalta Jóhannesar Guðmundssonar, skrifstofustjóra á umhverfis-og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Ekkert snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í nótt og auðveldar það mokstur í dag en Hjalti segir allar líkur á að mokstri í húsagötum verði ekki lokið fyrr en eftir tvo til þrjá daga.

„Stofnbrautir eru orðna fínar og þá erum við að vinna í að breikka og aðlaga tengigötur að stofnæðum,“ segir Hjalti í samtali við Vísi. Hann segir unnið eftir forgangi; fyrst sé byrjað á stofnbrautum, þá farið í tengigötur þeirra og loks húsagötur. Það sé gert svo að allar leiðir strætó geti til að mynda gengið samkvæmt áætlun.

 

Hjalti biður fólk um að sýna þolinmæði í umferðinni þar sem það taki nokkra daga að klára moksturinn. Aðspurður hvað fólk geti gert til að auðvelda aðgengi snjómoksturstækja í húsagötum segir Hjalti:

„Ef bílar eru fastir í götunni er best að reyan að losa þá og koma í stæði þannig að göturnar sjálfar séu sem mest lausar svo við getum sinn starfi okkar vel og skilvirkt og tækin komist um. Ef það er mikið af bílum fyrir þá er erfiðara að moka og það verður ekki eins vel gert.“

Færð og aðstæður á vegum:

Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum og Sandsskeiði en á Suðurlandi er all víða nokkur hálka eða snjóþekja. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Ófært er í Kjósarskarði og á Suðurstrandavegi en unnið að hreinsun.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og snjóþekja á nokkrum útvegum.

Það er snjóþekja mjög víða á Vestfjörðum og þæfingsfærð á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði en unnið að hreinsun.

Á Norður- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum og éljagangur á norðaustur hluta landsins. Snjókoma er á Fjarðarheiði og Oddskarði. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.

Það er að mestu greiðfært með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir á stöku stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×