Innlent

Bursta tennur barna í leikskólanum

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Tannhirðu hjá fjölda leikskólabarna er ábótavant. Á leikskólanum Ösp eru tennur leikskólabarna burstaðar eftir hádegismatinn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var litið við í leikskólanum þegar tennur barnanna voru burstaðar í dag.

Í umfjöllunum Stöðvar tvö í vikunni hefur verið fjallað um slæma tannheilsu íslenskra barna en miklu meira er um tannskemmdir í þeirra hópi  en sambærilegum hópum í nágrannalöndum. Að minnsta kosti þrjúhundruð íslensk börn eru svæfð á hverju ári vegna alvarlegra tannskemmda.

Á leikskólanum Ösp er reynt að koma í veg fyrir þetta. 

Verkefnið kallast betri tannheilsa barna og er unnið í samstarfi heilsugæslunnar og Þjónustumiðstöð Breiðholts. Átakið nær til sjöhundruð barna í dag en í átta leikskólum í Breiðholti, Garðabæ og Kópavogi er það hluti af daglegri rútínu að bursta tennur barna eftir hádegismatinn.

Tannlæknir starfar með leikskólunum, metur tannheilsu barnanna og veitir aðstoð við að skráningu barna hjá heimilistannlækni.  Foreldrar vanda sig við tannhirðu barnanna heima – á morgnana og á kvöldin – en eftir hádegismatinn eru tennurnar burstaðar í leikskólanum.



Hólmfríður Guðmundsdóttir er sérfræðingur í tannheilsu Íslendinga hjá Embætti landlæknis og segir átakið gefa góðan árangur.

„Hér er verið að vinna mjög gott starf með unga fólkið okkar og litlu börnin. VIð erum að hugsa um að bursta tennurnar í leikskólanum. Starfsfólk og foreldrar eru mjög kátir og  ánægðir með þetta framtak.

Við viljum fækka tannskemmdum hjá þessum litlu börnum. Ekki viljum við hafa þau með tannskemmdir í leikskólanum. Síðan erum við líka að vinna í því að þegar þau mæta í fyrsta skipti til tannlæknis að þá sé það ánægjuleg upplifun en ekki svona erfiðleikar eins og við sáum nýlega í þessum mögnuðu þáttum sem voru sýndir á Stöð 2.“ [Innskot blm:Junk Food Kids].  

Hólmfríður segist vona að í framtíðinni verði öll leikskólabörn á landinu burstuð eftir hádegismatinn.

Á leikskólaaldri eykst tannheilsuvandi jafnt og þétt. Á skýringarmynd hér til hliðar sést hlutfall barna sem hafa verið skráð hjá heimilistannlækni í þeim árgöngum sem komnir eru inn í gjaldfrjálsa kerfið. Eins og sjá má þá lækkar hlutfallið með aldri barnanna.

„Við erum búin að sjá heilmikinn árangur. Bæði sjáum við það að börnin eru betur burstuð, það er það sem við viljum vinna í.  Svo eru þau öll svo ánægð með þetta börnin. Þau vilja hafa hreinar og heilar tennur hér á Öspinni.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×