Innlent

Búið að kveikja á Oslóartrénu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá Austurvelli í dag.
Frá Austurvelli í dag. vísir/ernir

Ljósin á Oslóartrénu voru tendruð á fimmta tímanum á Austurvelli í dag. Voru það Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Khamshajiny Gunartnam varaborgarstjóri Osló sem kveiktu á trénu.

Venju samkvæmt er tréð hið glæsilegasta en ljósanna prýðir jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra tréð. Óróinn heitir Skyrgámur að þessu sinni en þetta er í tíunda skipti sem félagið safnar fé með jólaórásölu. Steinunn Sigurðardóttir hannaði óróann að þessu sinni.

Tréð í ár er síðasta tréð sem Norðmenn senda til Íslands en borgirnar ákváðu í sameiningu að héðan í frá myndu Norðmenn gefa borginni tré úr Heiðmörk. Þótti það samræmast umhverfisviðhorfum betur en núverandi fyrirkomulag.

„Mér fannst fallegt og gaman að heimsækja skóginn í Heiðmörk og læra um sögu hans og sterk tengsl við Noreg,“ segir Kamzy. „Ræktunin hófst fyrir meira en 50 árum og hef séð með eigin augum að trén eru fullvaxta. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heimsæki Ísland og það er sannur heiður fyrir mig sem fulltrúa Oslóarborgar að færa íbúum Reykjavíkur Oslóartréð. Ég hef heyrt að fyrir mörgum borgarbúum marki tendrun ljósa Oslóartrésins ákveðið upphaf jólahaldsins. Mikil vinabönd eru á milli borganna tveggja og við viljum styrkja þá vináttu með því að senda alltaf fulltrúa frá borgarstjórn Oslóar til Reykjavík. Framlag okkar í framtíðinni verður með einhvers konar menningarlegu ívafi, jafnvel barnamenningu allt til þess að styrkja vinabönd Reykjavíkur og Oslóar,“ segir Kamzy.

„Það var frábært að geta sýnt fulltrúum Oslóar þessi fínu tré sem núna vaxa í Heiðmörk en framvegis mun Oslóartréð koma þaðan með sínar djúpu norsku rætur. Um leið ætlum við að nota tækifærið og styrkja tengsl borganna tveggja og efla hin menningarlegu tengsl sem munu svo leiða okkur á frekari brautir stórra og smárra verkefna þessara miklu vinaborga,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×