Innlent

Brynjar spyr hvers vegna verið sé að hafa prófkjör

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ólga er meðal Sjálfstæðismanna vegna ráðherravals. Oddviti flokksins í Suðurkjördæmi segir það lítilsvirðingu gagnvart kjördæminu að hafa ekki fengið ráðherra, - og annar þingmaður spyr hvers vegna verið sé að hafa prófkjör. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. 

Þetta eru sennilega óvæntustu tíðindi gærkvöldsins, sú ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að tilnefna þær Sigríði Andersen og Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur til ráðherradóms, Sigríði með tveggja ára þingreynslu og Þórdísi sem nýliða, og báðar með reyndari þingmenn ofar á lista. 

Í gegnum áratugi hafa þættir eins og útkoma manna úr prófkjörum, pólitísk reynsla og vægi kjördæma verið ráðandi um ráðherraval hjá Sjálfstæðisflokknum. Að víkja slíkum þáttum til hliðar til að fá inn fleiri konur verður því að teljast býsna stór stefnubreyting.

Páll Magnússon studdi ekki ráðherravalið á þingflokksfundi sjálfstæðismanna í gærkvöldi.Stöð 2/Einar Árnason.
Í veikindaleyfi Ólafar Nordal er Brynjar Níelsson starfandi oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík norður. Hann hafði áður lýst þeim sjónarmiðum sem hann teldi að ættu að gilda við ráðherraskipan: 

„Það væri annars vegar þekking og reynsla og hins vegar pólitískt umboð. Það var ekki farið eftir því að öllu leyti núna. En ég studdi þessa niðurstöðu og svona er þetta bara,“ segir Brynjar. 

Páll Magnússon studdi hins vegar ekki niðurstöðuna, sagði hana ganga gegn því lýðræðislega umboði sem þingmenn hefðu áunnið sér í prófkjörum og að hún fæli í sér lítilsvirðingu gagnvart Suðurkjördæmi þar sem flokkurinn vann sinn stærsta sigur. Páll baðst undan viðtali í dag en við spurðum Brynjar hvort verið væri að hunsa lýðræðið: 

„Ja, það er verið að virða það svolítið að vettugi, má segja. Þá spyr maður sig að því: Til hvers er verið að hafa prófkjör? Það kannski skiptir litlu máli þegar upp er staðið,“ segir Brynjar.


Tengdar fréttir

Ráðherralisti Sjálfstæðisflokksins tilbúinn

Kristján Þór Júlíusson, Sigríður Á. Andersen, Jón Gunnarsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Bjarni Benediktsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Jón Gunnarsson eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í nýrri ríkisstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×