Sport

Bryndís bætti Íslandsmetið sitt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bryndís Rún setti nýtt Íslandsmet en komst ekki áfram.
Bryndís Rún setti nýtt Íslandsmet en komst ekki áfram. mynd/sundsamband íslands
Bryndís Rún Hansen, úr Óðni, setti nýtt Íslandsmet í 100 metra flugsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag.

Bryndís synti á 59,95 sekúndum í dag. Gamla metið hennar, sem var orðið fimm ára gamalt, var 1:00,25.

Bryndís endaði í 27. sæti í greininni og komst ekki í millirðla. Til þess að komast þangað þurfti að synda undir 58,20 sekúndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×