Lífið

Brúðkaup ársins: Þessi gengu í það heilaga árið 2014

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Margir þjóðþekktir Íslendingar innsigluðu ástina á árinu sem er að líða og voru brúðkaupin hvert öðru glæsilegra. 

Lífið á Vísi kíkti á nokkur stjörnubrúðkaup sem tekið var eftir á árinu 2014.

Tvö hundruð manna brúðkaup

Leikkonan og fyrirsætan Halla Vilhjálmsdóttir gekk að eiga Harry Koppel í Kólumbíu þarsíðustu helgi. 

Um tvö hundruð manns mættu í brúðkaupið og klæddist Halla kjól frá Veru Wang og hælum frá Christian Louboutin. Þá bar hún prjónað sjal úr smiðju móður sinnar en Harry klæddist kjólfötum frá Gieves & Hawkes.

Halla gaf Harry tónlist í brúðargjöf og samdi til hans þrjú lög. Eftir brúðkaupið flugu brúðhjónin til Cartagena, ásamt sextíu manna hópi, í brúðkaupsferð.

Hamingja í Hallgrímskirkju

Söngvarinn Jógvan Hansen kvæntist stærfræðingnum Hrafnhildi Jóhannesdóttur í Hallgrímskirkju þann 12. júlí.

Eftir athöfnina var boðið til veislu á Hilton hótelinu þar sem gestir fengu meðal annars að smakka skerpukjöt frá heimalandi Jógvans, Færeyjum, og hákarl og súra punga frá Íslandi.

Giftu sig í skotapilsum

Guðbergur Garðarsson og Inácio Pacas da Silva Filho, sem oftast eru kallaðir Beggi og Pacas, gengu í það heilaga þann 15. ágúst. 

Beggi og Pacas klæddust skotapilsum á þessum stóra degi og var mikil gleði í brúðkapinu. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, gaf turtildúfurnar saman.

Brúðarkjóllinn keyptur í Kaliforníu

Leikkonan og verslunareigandinn María Birta Bjarnadóttir sagði já við listamanninn Elli Egilsson þann 14. júlí.

Brúðkaupið fór fram undir berum himni í Grímsnesinu en aðeins nánustu ættingjar og vinir parsins voru viðstaddir.

María og Elli byrjuðu saman í október árið 2013 og í febrúar á þessu ári keypti María Birta brúðarkjólinn í Kaliforníu.

Brúðkaup eftir langt samband

Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Geir Sveinsson létu pússa sig saman á Höfðatorgi þann 28. júní.

Þá höfðu þau verið saman í meira en áratug og eiga saman fimm börn.

Veislan var einnig haldin á Höfðatorgi og var það mál manna að hún hafi verið einstaklega skemmtileg og lífleg.

Á eftir barni kemur brúðkaup

Árið var gjöfult hjá dansparinu Hönnu Rún Óladóttur og Nikita.

Þau eignuðust sitt fyrsta barn, lítinn snáða, þann 13. júní síðastliðinn. Skömmu eftir fæðingu frumburðarins lét þau séra Gunnar Sigurjónsson, sem oftast hefur verið kallaður sterkasti prestur landsins, gefa sig saman í Digraneskirkju.

Giftu sig á 17. júní

Rithöfundurinn Sólveig Jónsdóttir giftist Atla Ragnari Ólafssyni á Búðum á Snæfellsnesi á sjálfan 17. júní.

Sólveig klæddist dökkbláum „vintage“-kjól en ekki hvítum eins og algengt er meðal brúða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×