Skoðun

Brothættar byggðir undir hnífinn

Oddný G. Harðardóttir skrifar
Undanfarin ár hefur umræða um byggðamál verið með öðrum og skýrari hætti en áður. Eftirtektarverð er vinna Byggðastofnunar um byggðir sem skera sig úr hvað varðar mikla fólksfækkun, erfitt atvinnuástand og óhagstæða aldursþróun undangengin ár. Sú vinna hefur ekki fengið mikla athygli utan byggðanna sem um ræðir en eru sannarlega athyglinnar virði. Unnið hefur verið með íbúum Raufarhafnar, Bíldudals, Skaftárhrepps og Breiðdalshrepps.

Í þessari nýstárlegu nálgun felast sértækar aðgerðir og vinna með íbúum þar sem hin almennu stuðningsúrræði á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og byggðaaðgerða dugi ekki ein til.

Verkefninu hefur verið fylgt úr hlaði með fjölsóttum íbúafundum um framtíðarsýn byggðanna, styrkleika og tækifæri. Þó aðferðin sé miðuð við brothættar byggðir snertir hún stefnumótun í byggðamálum í heild. Má þar nefna stefnu í fjarskiptamálum, samgönguáætlun, jöfnun húshitunar á köldum svæðum, dreifnám og menntastefnu og yfirfærslu málaflokka frá ríki til sveitarfélaga.

Byggðastofnun var tryggt fé, 50 milljónir króna, á fjárlögum yfirstandandi árs til að vinna samkvæmt þessari nýju aðferð. Sú fjárveiting, ásamt sóknaráætlunum landshlutanna með 400 milljónum króna, sýnir ótvíræðan vilja ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur til að vinna að bættum búsetuskilyrðum í brothættum byggðum þrátt fyrir þröngan fjárhag ríkisins.

Þau slæmu tíðindi eru hins vegar boðuð með fjárlagafrumvarpinu að ný ríkisstjórn hefur slegið þessa mikilvægu vinnu Byggðastofnunar af ásamt sóknaráætlun landshluta í heild sinni. Auk þess hefur hægristjórnin hætt við byggingu húsnæðis fyrir þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri í Skaftárhreppi sem hefja átti á þessu ári. Þekkingarsetrið er vel undirbúið samstarfsverkefni sem heimamenn höfðu bundið miklar vonir við og samtök sveitarfélaga á Suðurlandi sett ofarlega á forgangslista í sóknaráætlun landshlutans. Eftir standa byggðirnar vonsviknar.

Enn er ekki útilokað að stjórnarliðar sjái að sér við vinnslu fjárlagafrumvarpsins á Alþingi og taki upp stefnu fyrri ríkisstjórnar í byggðamálum. Slík stefnubreyting bæri vott um raunsæi og skynsemi og blési krafti í byggðirnar úti um landið sem eiga undir högg að sækja.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×