Fótbolti

Brjálaðir fótboltapabbar fóru að slást í miðjum leik strákanna sinna | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Myndin tengist ekki fréttinni en slagsmál koma upp á mörgum stöðum tengdum fóboltanum en sjaldnast þó á leikjum unglingaliða. Það kom þó fyrir á Spáni um síðustu helgi.
Myndin tengist ekki fréttinni en slagsmál koma upp á mörgum stöðum tengdum fóboltanum en sjaldnast þó á leikjum unglingaliða. Það kom þó fyrir á Spáni um síðustu helgi. Vísir/Getty
Foreldrar barna í íþróttum geta verið til vandræða en vandamálið er þó sjaldan eins mikið og á Spáni þar sem mörg félög eru að lenda í miklum vandræðum með skapheita foreldra.

Eitt alvarlegasta dæmið um þetta var á leik tólf og þrettán ára stráka á Mallorca um helgina en þá varð allt vitlaust, ekki inn á vellinum heldur utan hans. Unglingaliðin Alaró og Collerense voru að þarna mætast en leikurinn kláraðist aldrei.

Spænska blaðið El Confidencial sagði frá slagsmálum foreldra en mikil ósætti urðu milli foreldra úr sitthvoru liðinu eftir harða tæklingu inn á vellinum. Eftir rifildi og köll manna í milli gengu tveir pabbar lengst og létu bæði hnefahögg og spörk vaða í hvorn annan.

Rifildið og slagsmálin byrjuðu utan vallar en enduðu innan hans. Dómari leiksins tók að lokum þá ákvörðun að flauta leikinn af.  Fréttin varð stærri því slagsmálin náðust á myndaband sem má sjá hér fyrir neðan.

Það var kaldhæðni örlaganna að Spánverjar voru einmitt að halda upp á Feðradaginn þennan umrædda sunnudag.

El Confidencial segir líka frá því að hegðun foreldra er orðið mikið vandamál á Spáni. Það voru því önnur dæmi um að foreldrar höfðu ruðst inn á völlinn til að segja hvorum öðrum til syndanna á leik hjá enn yngri börnum.

Fyrr á þessu ári tóku líka forráðamenn Atlético Madrid þá ákvörðun að banna foreldrum að vera á æfingasvæðinu á virkum dögum þar sem að félagið treysti sér ekki til að gæta öryggis þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×