Bíó og sjónvarp

Bright Lights: Stormasamt samband, sorgir, sigrar og húmor

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Mæðgurnar í góðum félagsskap.
Mæðgurnar í góðum félagsskap.
HBO hefur gefið út glænýja heimildamynd um mæðgurnar Debbie Reynolds og Carrie Fisher, sem létust báðar í desember. Myndin heitir Bright Lights: Starring Debbie Reynolds and Carrie Fisher og stiklu má sjá neðst í fréttinni. 

Sjá einnig: Carrie Fisher er dáin

Báðar áttu þær farsælum ferli að fagna í Hollywood, Debbie lék í myndum á borð við Love Boat og Singing in the Rain. Þá lék hún í hinni geysivinsælu þáttaröð Golden Girls.

Sjá einnig: Debbie Reynolds er látin

Carrie, dóttir hennar, var þekktust fyrir hlutverk sitt sem princess Leia í Stjörnustríðsmyndunum.

Það reyndi oft á í einkalífinu og fregnir af fjölskyldunni rötuðu reglulega á forsíður slúðurblaðanna.

Á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.10 í kvöld er glæný heimildamynd úr smiðju HBO um mæðgurnar - um stormasamt samband þeirra, sorgina og sigrana - og húmorinn, sem þær voru báðar þekktar fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×