Sport

Breytingar framundan á Reykjavíkurmaraþoninu

Myndefni tengist fréttinni ekki beint.
Myndefni tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Andri Marinó
Breytinga er að vænta á Reykjavíkurmaraþoninu en fram kemur í dómsúrskurði yfirdómnefndar Reykjavíkurmaraþonsins að breytingar séu nauðsynlegar til þess að tryggja að hlutir líkt og ásökunin sem kæra Péturs Sturlu Bjarnarsonar á hendur Arnars Péturssonar byggist á gerist ekki aftur.

Dómnefndin ákvað að sýkna kröfu Péturs um að þátttaka Arnars yrði gerði ógild í ljósi þess að ekki væri hægt að segja með fullri vissu að meintir aðstoðarmenn Arnars hefðu veitt honum drykki líkt og kæran gaf til kynna né aðstoðað hann að öðru leyti. Ekki væri næg sönnun fyrir því að Arnar hefði notið aðstoðar þeirra á meðan keppni stóð.

Þá kemur fram í skýrslunni að Arnar var 9,20 mínútum á undan Pétri í mark og var það mat dómnefndarinnar að fylgd umræddra hjólreiðamanna hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu Íslandsmeistaramóts karla í maraþoni.

Dómnefndin tekur tillit til þess að starfsmenn og áhorfendur hafi bent þeim á það að fjöldi manns virtist hafa hlaupið með hjólareiðafólki þótt ekki sé hægt að sanna að þau hafi notið aðstoðar þeirra. Mun verða sérstakt átak til þess að fylgjast með þessu á næsta ári segir í skýrslunni.

Einnig nefnir kæran að nauðsynlegt virðist vera að fjölga dómurum á hlaupabrautinni til þess að fylgjast betur með. Er það skylda dómara að aðvara keppendur verði þeir uppvísir að því að brjóta reglurnar en enginn dómari veitti Arnari aðvörun.


Tengdar fréttir

Sigurvegari Reykjavíkurmaraþonsins sakaður um svindl

Yfirdómnefnd Reykjavíkurmaraþons hafnaði kæru Péturs Sturlu Bjarnasonar en hann sakar Arnar Pétursson um að hafa svindlað þegar hann kom fyrstur í mark í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×