Lífið

Bréfdúfurnar sem unnu leiksigra á fjölum Þjóðleikhússins farnar í frí eftir helgi

Guðrún Anses skrifar
Dúfurnar flögrðu um og höfðu það huggulegt innan veggja Þjóðleikhússins. Þær fara nú í verðskuldað frí til sinna heima.
Dúfurnar flögrðu um og höfðu það huggulegt innan veggja Þjóðleikhússins. Þær fara nú í verðskuldað frí til sinna heima.
Sigga Soffía er höfundur sviðslistaverksins og hefur því unnið náið með dúfunum.
„Þetta hefur gengið vonum framar með dúfurnar, þær eru þvílíkt töfrandi og einlæg nærvera sem þær hafa,“ segir Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur verksins Svartar fjaðrir sem var opnunarsviðsverk listahátíðar í ár.

„Saga Garðarsdóttir, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum, hefur til að mynda bundist djúpum tilfinningaböndum við eina dúfuna, en hún er alltaf með þá sömu í sýningunum,“ útskýrir Sigga Soffía sem segir mikill heilagleika myndast í senunni þar sem dúfurnar eru meðal leikara.





„Þetta er búið að vera frábært ævintýri og ógleymanlegt augnablik þegar allir leikararnir biðu í einfaldri röð eftir að fá úthlutað dúfu til að kynnast og vera með á sviðinu.“

Skemmst er að minnast er Sigga Soffía leitaði logandi ljósi að dúfum til að hlaupa í skarðið fyrir þær dúfur sem hún hafði þegar gert ráð fyrir í sýningunni, er brast á með óvæntu fæðingarorlofi hjá dúfunum. 

„Ég var svo heppin að komast í samband við Ragnar Sigurjónsson, sem bjargaði mér fyrir horn en hann vildi gjarnan vera með og sérvaldi þær dúfur sem honum fannst henta í verkefnið, hefðbundnar bréfdúfur, dúfur af dönsku kyni en Ragnar á yfir 150 fugla.“

Sigga Soffía segir afar vel hafa verið hugsað um fuglana í sýningunni;„Þær nutu þess að fljúga um leikmyndina, sem minnir á risavaxna fuglagrind þar sem dúfurnar gátu flögrað milli skúlptúra og tyllt sér.“ 

Um komandi helgi fá fuglarnir svo að fljúga um svið Þjóðleikhússins í síðasta skipti í bili. „ Aðeins örfáir miðar eru eftir á sýningarnar um helgina svo ég hvet fólk til að missa ekki af dúfunum og koma í gleðina með okkur,“ segir Sigga Soffía að lokum, en síðustu sýningar á Svörtum Fjöðrum eru þann 31.maí.


Tengdar fréttir

Górillustelpur og klifurdans

Tveir heimsfrægir listhópar opna Listahátíð Reykjavíkur í ár með opnum viðburðum miðborginni sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Á lóðréttu danssviði

Listahátíðin í Reykjavík, fyrri hluti, hefst í dag með magnaðri opnunarhátíð kl. 17.30 á Ingólfstorgi þar sem framhlið byggingarinnar í Aðalstræti 6 myndar sviðið fyrir Ameliu Rudolph og dansarana hennar í Bandaloop.

Konur í aðalhlutverki

Listahátíð í Reykjavík 2015 Fyrri hluti var kynnt í gær og þar verður fjöldi spennandi listviðburða í boði og er lögð áhersla á að rétta mjög svo skertan hlut kvenna innan hátíðarinnar frá því sem verið hefur allt frá fyrstu hátíðinni 1970.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×