Fótbolti

Börsungar töpuðu í Flórens

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Suárez minnkar muninn í 2-1.
Suárez minnkar muninn í 2-1. vísir/getty
Fiorentina vann Barcelona með tveimur mörkum gegn einu á International Champions Cup í kvöld. Leikurinn fór fram á Stadio Artemio Franchi í Flórens, heimavelli Fiorentina.

Öll mörkin komu á fyrstu 17 mínútum leiksins. Federico Bernardeschi kom Fiorentina yfir strax á 4. mínútu og átta mínútum síðar bætti hann öðru marki við.

Luís Suárez minnkaði muninn í 2-1 á 17. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki. Lionel Messi, Javier Mascherano og Neymar léku ekki með Börsungum í dag en annars voru þeir með sitt sterkasta lið.

Barcelona hefur lokið leik á mótinu en Fiorentina á einn leik eftir, gegn Chelsea á Stamford Bridge á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×