Fótbolti

Börsungar niðurlægðir í borg ástarinnar á Valentínusardaginn | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ángel Di María fagnar fyrra marki sínu.
Ángel Di María fagnar fyrra marki sínu. Vísir/afp
Paris Saint-Germain er komið með annan fótinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir fyrri leikinn gegn Barcelona í 16 liða úrslitum keppninnar í kvöld.

Frakklandsmeistararnir gerðu sér lítið fyrir og niðurlægðu Spánarmeistarana með 4-0 sigri á sjálfan Valentínusardaginn í borg ástarinnar. PSG-liðið var betra frá upphafi til enda og verðskuldaði sigurinn.

Fyrrverandi Real Madrid-maðurinn Ángel Di María kom PSG yfir á 18. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu og þýski miðjumaðurinn Julian Draxler tvöfaldaði forskotið á 40. mínútu leiksins.

Draxler er búinn að byrja frábærlega hjá PSG en hann var keyptur til liðsins í janúar frá Wolfsburg. Þetta er fimmta markið hans í átta leikjum síðan hann gekk í raðir Frakklandsmeistaranna í byrjun árs.

Barcelona var enn þá inn í einvíginu og rúmlega það þrátt fyrir að vera bara 2-0 undir en Katalóníuliðið náði sér aldrei í gang og fékk á sig tvö mörk til viðbótar í seinni hálfleik.

Ángel Di María skoraði aftur með frábæru skoti fyrir utan teig eftir að heimamenn unnu boltann á miðjum vellinum og þeyttust fram. Edison Cavani innsiglaði svo 4-0 sigur með góðu skoti úr teignum og þar við sat.

Samuel Umtiti var hársbreidd frá því að minnka muninn í 4-1 þegar skalli hans small í sláni en ljóst er að Börsungar eru heldur betur með bakið upp við vegg fyrir seinni leikinn.

Þetta er jöfnun á stærsta tapi Barcelona frá upphafi í Meistaradeildinni. Börsungar töpuðu 4-0 fyrir Bayern 2013 og einnig með sama mun í frægum úrslitaleik á móti AC Milan árið 1994.

1-0, Ángel Di María kemur PSG yfir: 2-0, Julian Draxler tvöfaldar forskot PSG: 3-0, Ángel Di María skorar aftur: 4-0, Edison Cavani skorar fjórða mark PSG:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×