Fótbolti

Börsungar í engum vandræðum með Las Palmas

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lionel Messi skoraði í kvöld.
Lionel Messi skoraði í kvöld. vísir/getty
Barcelona vann auðveldan sigur á Las Palmas, 5-0, í 18. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í dag en leikurinn fór fram á Camp Nou í Barcelona. 

Luis Suarez skoraði tvö mörk í leiknum, Lionel Messi, Aleix Vidal og Arda Turan gerði síðan sitt markið hver. 

Barcelona mátti ekki við því að misstíga sig og er liðið í öðru sæti deildarinnar með 38 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×