Enski boltinn

Bless, bless Gerrard

Anton Ingi Leifsson skrifar
Steven Gerrard spilaði sinn síðasta deildarleik fyrir Liverpool í dag þegar Liverpool beið afhroð á útivelli gegn Stoke í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur urðu 6-1 sigur heimamanna í Stoke.

Gerrard hefur spilað með aðalliði Liverpool frá árinu 1998, en hann lék sinn fyrsta leik gegn Blackburn 29. nóvember það ár. Frá því hefur hann spilað rúmlega 500 leiki og skorað 120 mörk.

Á vormánuðum ákvað Gerrard að ganga í raðir LA Galaxy, en hann gengur formlega í raðir liðsins í júlí á þessu ári.

Síðasti þáttur Messunnar á þessu tímabili var í dag og þar var Steven Gerrard sérstaklega heiðraður.

Syrpuna má sjá hér efst í fréttinni, en þar er meðal annars farið yfir helstu afrek Gerrard með Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×