Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út á Hellisheiði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björgunarsveitir til aðstoðar á heiðinni.
Björgunarsveitir til aðstoðar á heiðinni. vísir/vilhelm
Björgunarsveitir frá Hveragerði og Þorlákshöfn hafa verið kallaðar út vegna ófærðar á Hellisheiði en þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Þar er nú slæmt skyggni og nokkrir ökumenn hafa fest bíla sína sem hamla því að hægt sé að ryðja. Heiðin hefur verið lokað en Þrengslin eru opin.

Einnig eru sveitir frá Akranesi og Kjalarnesi á leið í Hvalfjörðinn en búið er að loka veginum um hann. Fljúgandi hálka er í firðinum og hafa bílar lent utan vegar af þeim sökum. Sveitirnar munu manna lokunarpósta auk þess að aðstoða vegfarendur sem eru í vanda.

Fyrr í dag voru björgunarsveitir kallaðar út vegna bíla sem ekið var út af, einn rétt sunnan Hólmavíkur, einn á Raknadalshlíð við Patreksfjörð og tveir á Holtavörðuheiði.

Færð er víða slæm og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg því til fólks að vera ekki á ferðinni nema á bifreiðum sem vel eru búnar til vetraraksturs. Einnig að virða lokanir lögreglu og Vegagerðar.

Lokað er um Hellisheiði en batnandi horfur eru fyrir seinnipart dags. Opið er um Þrengslaveg. Einnig er lokað um Hvalfjörð.

Búast má við vaxandi suðaustanátt S- og V-lands með snjókomu í fyrstu en síðan slyddu og rigningu eftir hádegi. Búast má við hríðarveðri á fjallvegum s.s Hellisheiði, Bröttubrekku og á Fróðárheiði, einnig á Vestfjörðum fram eftir degi en slyddu seinnipartinn. Hlýnandi veður og fer að rigna víðast hvar á láglendi síðdegis.

Rignir fram á kvöld en þá snýst í hægari suðvestanátt með kólnandi veðri og ísingarhætta mikil.

NA- og A-til má búast við ofankomu í dag, yfirleitt snjókomu en mögulega slyddu á láglendi. Kólnar þar í nótt og fyrramálið með snjókomu norðan til.

Snjóþekja og skafrenningur er á Sandsskeiði og í Þrengslum en lokað um Hellisheiði. Hálka og óveður er á Kjalarnesi. Hálka er á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum. Það er hálka og snjóþekja á Suðurlandi en hálkublettir og hálka á Suðvesturlandi. Flughált er undir Eyjafjöllum og að Vík.

Á Vesturlandi er hálka og snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Hálkublettir og óveður er undir Hafnarfjalli. Ófært er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og sumstaðar skafrenningur. Hálka og þoka er á Steingrímsfjarðarheiði. Flughálka er á Rakandsalshlíð, Barðaströnd og á köflum í Ísafjarðardjúpi. Ófært og stórhríð er á Kleifaheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×