Skoðun

Bjór og Gullæði

Hjálmar Árnason skrifar
Opið bréf til Andra Þórs Guðmundssonar, forstjóra Ölgerðarinnar.

Kæri Andri Þór.

Fréttir berast af hótun þinni um málsókn á hendur frændum okkar Færeyingum. Að vísu er haft eftir þér að þú viljir bara leita friðsamlegra leiða til sátta við færeysku ölgerðina Föroya Bjór. Samkvæmt bréfi lögmanns þíns felur sú friðsamlega leið í sér að þú munir reyna að bannfæra færeyska ölið á Íslandi ef innflutningi þess verði ekki hætt þegar í stað. Eins og góður vinur minn er vanur að segja: „Comon. Hvað er í gangi?“ Hin meinta sök færeysku ölgerðarinnar er einföld: Hún flytur til Íslands og býður til sölu þann ágæta drykk Föroya Bjór – Gull. Þvílíkur glæpur. Og sé málið skoðað í stærra samhengi má svo vísa í enn stærri glæp – nefnilega Tuborg Guld.

Færeyska gullið hefur verið framleitt lengur en Egils Gull og Tuborg enn lengur. Allt er þetta mjöður af sama meiði en með ólíkum tungumálum. Íslenska framburðinn þekkjum við öll, á færeysku er orðið borið fram GÚDL og á dönsku GÚL. Allt er þetta samt bjór, kenndur við gull. Og gullið er ekki uppfinning ykkar hjá Ölgerðinni né heldur Föroya Bjórs. Helst að Danir geti gert tilkall til merkingarinnar. Þeir gera það hins vegar ekki af því þeir trúa á heiðarlega og eðlilega samkeppni. Og sannarlega hef ég staðið í þeirri trú að þú og Ölgerðin væruð fylgjandi heiðarlegri samkeppni. Af bréfi þínu að dæma virðist ég hafa rangt fyrir mér. Þetta eru ekkert annað en viðleitni til að hindra eðlilega samkeppni á einkar fáránlegum forsendum.

Kæri Andri Þór.

Færeyingar eru sú þjóð sem best hefur staðið með Íslendingum þegar á hefur reynt. Varla telur þú þá eiga það skilið að við þökkum fyrir okkur með þessum hætti – jafn afkáralegur og hann er. Örlítil bjórsala þeirra á íslenskum markaði getur ekki skipt íslensk fyrirtæki miklu máli. Færeyingar hljóta að mega nota færeysk orð um vöru sína, rétt eins og þú með íslenska orðið og Danir með sitt. Heldur þú virkilega að Ölgerðin græði á svona framferði? Gleymdu því ekki að Færeyingar eiga fjölmarga vini á Íslandi – vini sem eru tilbúnir að sýna í verki að þeir standi með Færeyingum ef ranglega er að þeim sótt.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×