Innlent

Bjóða upp á tjaldgistingu fyrir sautján þúsund krónur nóttina

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Getty
Framtakssamir frumkvöðlar í ferðaþjónustu bjóða nú upp á nýstárlega þjónustu í ferðamennsku hér á landi. Hægt er að leigja gistingu í svokölluðum lúxustjöldum á tjaldsvæði í Mosfellsbæ. Kostar nóttin litlar sautján þúsund krónur en pláss er fyrir fimm í tjaldinu.

Hægt er að bóka gistingu í tjöldunum á bókunarsíðunni Booking.com. Þar má sjá að inn í gjaldinu er fjallaútsýni og grillaðstaða auk þess sem að inn í tjaldinu er allt sem þarf fyrir svefninn, rúm, sængurföt og koddar. Þá geta þeir sem nýta sér gistingu nýtt sér salernis- og sturtuaðstöðu á tjaldsvæðinu en handklæði fylgja með tjaldinu.

Tjaldsvæðið sem um ræðir er Mosskógar í Mossfellsdal. Staðarhaldari þar er Jón Jóhannsson og í samtali við Vísi tók hann skýrt fram að þessi þjónusta væri ekki á vegum tjaldsvæðisins. Fyrir nokkru hafi hópur manna komið með þessa hugmynd og hafi hann tekið ágætlega í hana, svo lengi sem að gjaldið fyrir gistinguna á tjaldsvæðinu yrði greitt, 1600 krónur. Þá hafi þeir samið um að starfsmenn tjaldsvæðisins myndu færa tjaldið öðru hvoru svo grasið undir myndi ekki skemmast.

Hann hafi þó ekki orðið var við að neinn hafi nýtt sér þessa þjónustu enn sem komið en á Booking.com má sjá að tjaldgistingin hefur verið í boði frá 18. júlí síðastliðnum. Jón segir raunar að tjöldin aldrei verið sett upp, utan eitt skipti fyrir myndatöku en afrakstur hennar má sjá á vef Booking.com

Tjöldin eru auglýst sem lúxustjöld en samkvæmt heimildum Vísis kostar eitt slíkt tjald um 129 þúsund krónur. Þarf því að bóka tjaldið í rétta rúma viku áður en mögulegt er að það borgi sig hreinlega að fjárfesta í einu slíku tjaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×