Innlent

Bjarni um stjórnarsáttmálann: „Lagðist vel í fundarmenn og var samþykktur með lófataki“

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Bjarni segir Sjálfstæðismenn glaða með niðurstöðuna.
Bjarni segir Sjálfstæðismenn glaða með niðurstöðuna. Vísir/Eyþór
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var glaður í bragði þegar Vísir náði af honum tali rétt eftir að fréttir bárust að Sjálfstæðisflokkurinn hefði samþykkt stjórnarsáttmálann. Hann segir að mikil samstaða hafi verið innan flokksins með nýkynntan stjórnarsáttmála og að sáttmálinn hafi verið samþykktur einróma. Flokksmenn séu því glaðir en flokksmenn funduðu í Valhöll í kvöld.

„Ég kynnti stjórnarsáttmálann. Hann verður kynntur opinberlega á morgun. Hann lagðist vel í fundarmenn og var samþykktur með lófataki,“ segir Bjarni og nefnir að hann muni jafnvel heyra í forsvarsmönnum hinna flokkanna nú á eftir. Hann segist ætla að kynna tillögur að ráðherraskipan annað kvöld. 

Af nægu að taka

Á meðal þess sem kemur fram í stjórnarsáttmálanum er að peningastefnan verði endurskoðuð og það gert í samræmi við skýrslu Seðlabankans frá árinu 2012. Áætlað er að lögð verði fram þingsályktunartillaga fyrir lok þings um hvort kjósa eigi um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Sáttmálinn felur einnig í sér breytingar á búvörusamningnum en gert er ráð fyrri að endurskoðun hans eigi að verða grunnur að nýjum samningi við bændur.

Þar kemur fram að draga eigi úr styrkjum til bænda en einnig eigi að auka frelsi þeirra og vöruúrval neytenda. Þetta á að gerast eigi síðar en árið 2019. Einnig koma fram hugmyndir um að markaðstengt gjald verði tekið upp í sjávarútvegi.

Stjórnarsáttmálinn felur einnig í sér eflingu heilbrigðiskerfisins og þar kemur fram að lækka eigi kostnaðarþátttöku sjúklinga og stytta biðtíma. Meðal annars verður lögð áhersla á uppbyggingu Landspítala við Hringbraut. Þá verður stuðningur við foreldra með geðvanda aukinn og fæðingarorlof verður hækkað í skrefum. Fyrirtækjum verður einnig gert að taka upp jafnlaunavottun ef þar starfa 25 manns eða fleiri.

Stjórnarskráin verður einnig endurskoðuð og litið verður til þeirrar vinnu sem þegar hefur verið unnin.


Tengdar fréttir

Nýr stjórnarsáttmáli: Samþykki Alþingis þarf fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB

Peningastefnan verður endurskoðuð í samræmi við skýrslu Seðlabankans frá árinu 2012 og lögð verður fram þingsályktunartillaga fyrir lok þings um hvort kjósa eigi um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýgerðum stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Viðreisn samþykkti stjórnarsáttmálann samhljóða

Ráðgjafaráð Viðreisnar samþykkti á fundi sínum í kvöld ríkisstjórnarsamstarf flokksins við Sjálfstæðisflokkinn og Bjarta framtíð. Stjórnarsáttmálinn var samþykktur samhljóða.

Viðreisnarfólk óánægt með Bjarna

Flokksmenn Viðreisnar létu í ljós óánægju sína með Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, sem sakaður hefur verið um að hafa setið á skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum fram yfir kosningar, á fundi þeirra í Ármúla í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×